Guðlaugur A. Magnússon  

gullsmiður hóf starfsemi sína á Ísafirði í febrúar 1924 með gull- og silfursmíðaverkstæði ásamt tilheyrandi verslun með framleiðslu verkstæðisins.
Til Reykjavíkur fluttist verkstæðið 1927 og hefur starfað hér síðan.
1936 er svo hafin framleiðsla á borðbúnaði úr silfri. Fyrsta vélin var keypt í janúar sama ár sem var pressa smíðuð af Vélsmiðjunni Héðni í Reykjavík og er varðveitt í Árbæjarsafni ásamt ýmsum gömlum stönsum úr smiðjunni. Fyrirtækið hefur þróast jafnt og þétt og er nú búið þeim fullkomnustu vélum og verkfærum, sem þekkist í þessari iðn.
Til gamans má geta þess að árið 1946, framleiddi verksmiðjan úr 497 kg af silfri, 925/1000 Sterling, og ennfremur úr 3 kg af gulli. Starfsmenn verksmiðjunnar voru þá átta.
Í ágúst 1947 var fyrirtækið gert að hlutafélagi undir nafninu Gull- og silfursmiðjan Erna h/f og var fyrsta stjórnin skipuð þannig: formaður Guðlaugur A. Magnússon, ritari Jens Guðjónsson og meðstjórnandi Stefán Albertsson. Forstjóri var Guðlaugur A. Magnússon.
Í dag er smíði minjagripa og skartgripa um helmingur framleiðslunnar á móti smíði borðbúnaðar. Enn er fornt handverk í hávegum haft og flestir munir handsmíðaðir.
Framkvæmdastjóri er Sara Steina dóttir Reynis Guðlaugssonar meistara smiðjunnar frá 1952 til 2001.

Silfurhringur eftir Guðlaug sem gert var við í mars 2009. Hringurinn var handsmíðaður 1945 fyrir vinafólk og gefinn Gunnlaugu Emilsdóttur í jólagjöf sama ár.