Fróðleiksmolar Ernu

 

Fróšlegt er aš skoša vangaveltur manna į netinu um mikla hękkun į gullverši sķšustu daga. Į sķšunni vald.org mį lesa eftirfarandi: 

"Žetta er kallaš "hręšslustig" vegna žess aš hagfręšingar hafa tekiš eftir žvķ aš žegar óvenju margir einstaklingar krefjast žess aš fį raunverulegt gull ķ hendurnar ķ stašin fyrir įvķsun į žaš, žį er oft stutt ķ efnahagslegt hrun af einhverju tagi.

Į žrišja įrsfjóršungi 2005 jókst sala į beinhöršu gulli um hvorki meira né minna en 66% mišaš viš sama įrsfjóršung fyrra įr. Žaš męlir mikla hręšslu viš eitthvaš – sennilega veršbólgu eša verbréfahrun.

Žaš eru žrjįr tifandi tķmasprengjur ķ hagkerfinu:

  • Botnlaus hallarekstur bandarķska rķkisins er óverjandi..."

http://www.vald.org

 

 Fróšlegt er aš kķkja ķ gamla gullsmķšaverkstęšiš į Įrbęjarsafni, sjį hvernig steypt var ķ sand fyrrum og hvernig vķravirki er smķšaš. Margir gamlir munir eru sżndir og einnig nokkrir nżlegir. Skart og nytjahlutir. Gamlar vélar, verkfęri og stöku heldri gullsmišur er einnig į svęšinu gestum til fróšleiks og skemmtunar.

 

Lummubakstur ķ Įrbęjarsafni

 

 

Į nęsta įri (2006) munu fyrirtękin U.S. Mint og Pan American Silver Corp. hefja slįttu į 99.99% hreinum silfur-og gullpeningum.  Ętlunin er aš höfša til žeirra er óttast veršbólgu og hugsanlegt gengisfall gjaldmišla.  Aš margra mati er įstęšan ęrin  ķ Bandarķkjunum. Kķnverjar kaupa rķkisskuldabréf ķ grķšarlegu magni frį BNA į mešan gengi yuansins er lįtiš fylgja dollar. Ef óskir Allans Greenspan sešlabankastjóra um aš Kķnverjar falli frį žessari tengingu rętast gętu afleišingarnar žżtt aš ódżr innflutningur frį Kķna mun ekki lengur tryggja fölsk lķfsgęši ķ BNA. Grķšarlegar skuldir BNA verša illvišrįšanlegar, vextir munu hękka, allt hrįefni (olķa, jįrn, gull o.s.frv.) mun hękka m.a. vegna aukinnar notkunar Asķužjóša. Dollarar sem Asķužjóšir byggja aš miklu leyti sinn gjaldeyrisforša į verša veršlausir og žęr fara aš kaupa gull ķ stašinn.  Žaš gera Rśssar žegar. Fróšlegt er aš sjį sveiflur ķ gull-og olķuverši nś žegar olķa hefur nįš įšur óžekktum hęšum.  Ķ upphafi olķukreppunnar 1973 kemst hreyfing į gullverš sem nįši hįmarki 1980 einsog olķuverš. Varaš skal žó viš svartsżni žvķ unniš er aš lausn žessara mįla einsog samrunaorkan og syntetisk olķa mun vęntanlega leysa olķuskort.  Fari allt į versta veg hinsvegar er gott aš fara aš rįšum góšs manns er sagši aš fyrir nęstu kreppu er bara aš kaupa 1 tonn af hrķsgrjónum og 2 bretti af nišursušuvörum, bon apetit!

 

 

 

 

(Molarnir aš nešan birtust ķ Sjónvarpshandbókinni į įrunum 1997-2000)


Gamall silfurborðbúnaður er mikið í tísku í dag. Best er að þvo hann upp úr upphituðu, köldu vatni því heitavatnið oxar silfrið. Varast ber að hita hnífana mikið því blöðin vilja losna séu þeir samsettir úr ákveðinni efnablöndu sem notuð var áður fyrr.  Sé gamall silfurborðbúnaður keyptur hjá antiksala er ráðlegt að fá leiðbeiningar hjá gullsmið um umhirðu. Rétt umhirða tryggir nánast ótakmarkaða endingu og aukið verðgildi með árunum.


Í 5000 ár hafa trúlofunarhringar verið tákn um kærleik og trúnað.

Brúðkaupsdagar:

1 ár: pappírs 9 ár: leir 25 ár: silfur
2 ár: bómullar 10 ár: tin 30 ár: perlu
3 ár: leður 11 ár: stál 35 ár: kóral
4 ár: blóma 12 ár: kopar 40 ár: rúbín
5 ár: tré 13 ár: knipplinga 45 ár: safír
6 ár: sykur 14 ár: fílabeins 50 ár: gull
7 ár: ullar 15 ár: kristals 55 ár: smaragðs
8 ár: brons 20 ár: postulíns 60 ár: demants


Mohs kvarði er notaður til þess að ákvarða hörku efna. Þrepin eru 10. Munur milli þrepa er mismikill. Ekki er mikill munur á milli annars og þriðja þreps en hinsvegar er 10. þrep 80 sinnum harðara en 9.

Mohs kvarði: Harka ýmissa efna:

1 Kalk
2 Gifs 2,5 Fingurnögl, fíngull. fínsilfur,blý
3 Kalsít 3 Kopar
4 Flúorít 4 925 Sterlingsilfur
5 Apatít 5,5 Rúðugler
6 Feldspat 6 Hnífsblað
7 Kvars 6,5 Þjöl
8 Tópas 9 Karbítur
9 Kórund
10 Demantur


925 Sterling er algengasta blanda silfurs í dag. Hinrik ll Englandskonungur (1133-89) tók upp þessa blöndu. Hún er kennd við hérað í Þýskalandi, Easterling. Þaðan komu bræðslumeistarar Hinriks. Um 1300 varð Easterling silfur gert að gjaldmiðli á Englandi.

Algengar gullblöndur: Algengar silfurblöndur:

8K 333 .3333 800/1000 silfurs
9K 375 .3750 830/1000 silfurs
10K 416 .4167 835/1000 silfurs
14K 585 .5833 900/1000 silfurs
18K 750 .7500 925/1000 silfurs (Sterling)
22K 916 .9167 958/1000 silfurs (Britannia)


Cu
Talið er að mannkynið hafi nýtt Kopar í 10.000 ár, lengur en nokkurn annan málm. Um 6.000 f. kr. smíðuðu Egyptar Koparvopn og um 5.000 f. kr. hefst bronsöld. Enn þann dag í dag er Koparinn manninum mikilvægur vegna eiginleika sinna. Hann leiðir hita og rafmagn mjög vel, auðvelt er að forma Kopar og hægt er að ná fram ólíkum eiginleikum með því að blanda Kopar við ýmsa málma, yfir 100 mismunandi blöndur eru þekktar. Komist Kopar í samband við rakt loft myndast spanskgræna, græn eitruð húð. Koparílát undir matvæli ættu að vera húðuð ef ekki þá er nauðsynlegt að hreinsa þau vel fyrir notkun.


Ni
Nikkel má m.a. finna í flestum loftsteinum, öllum plöntum og dýrum. 1751 uppgötvaði A.F.Cronstedt þennan silfurlita harðmálm. Nikkel er aðallega notað í málmblöndur til að auka styrk og viðnám gegn tæringu. Helsta nikkelblanda sem notuð hefur verið við skartgripasmíði er nýsilfur. Nýsilfur samanstendur af 60% kopar, 20% sinki og 20% nikkel.
Nikkel er einnig mikið notað við málmhúðun sem undirhúð undir t.d. gullhúð á ódýrum skartgripum. Fyrir allmörgum árum hættu íslenskir gullsmiðir að nota nikkel vegna eituráhrifa og rétt er að vara við húðuðum tískuskartgripum til að forðast nikkelofnæmi.


Art Nouveau
Jugend

Í byrjun þessarar aldar náði nýlistarstefnan hápunkti sínum. Hún hóf til vegs og virðingar deyjandi handverk til mótvægis við fjöldaframleiðslu. Handverksmenn fengu notið sín til fulls. Frjálsar og tignarlegar léttar línur einkenndu þetta tímabil. Einn áhrifamesti gullsmiður þessa stíls var René Lalique. Hugmyndaauðgi hans,
efnisnotkun og einstök leikni urðu þess valdandi að gullsmíði varð leiðandi grein innan nýlistarstefnunnar.


Gullborgin Pforzheim
Í Svartaskógi er borg sem í 200 ár hefur verið ein helsta miðstöð gull- og silfursmíði í heiminum. Gullsmíðaskólann þar sækja nemendur frá öllum heimshornum (þ.á.m. Íslandi / Dóra Jónsdóttir Dalmannssonar og Reynir Guðlaugsson Magnússonar) og hefur hann útskrifað fleiri merka gullsmiði en nokkur annar skóli. Í seinni heimsstyrjöld var borgin jöfnuð við jörðu. Aðeins 10 árum síðar hafði hún náð sínum fyrri sessi. Það er ekki ofsögum sagt af þjóðinni austan Rínarfljóts.


Georg Jensen
1866-1935

Starfaði sem myndhöggvari þar til hann sneri sér að silfursmíði í Kaupmannahöfn 1904. Starf hans hefur fært Dönum viðurkenningu sem einir fremstu silfursmiðir heimsins. Til marks um frábæra hönnun og smíði er eftirspurn eftir munum frá Georg Jensen gríðarleg. Fjöldi verslana sem bera nafn hans eru um alla heimskringluna. Íslenskt silfur hefur náð nokkurri útbreiðslu erlendis. Aðallega er það silfurborðbúnaður frá Guðlaugi A. Magnússyni (1902-1952) sem fagurkerar víða um heim safna. Á skammri ævi setti hann á fót afkastamikla silfursmiðju jafnframt því að vara fjölhæfur listamaður.


Flestar menningarþjóðir heimsins eiga sér stimplalög sem tryggja fyrst og fremst hagsmuni þeirra er fjárfesta í munum úr eðalmálmum. Óheimilt er að selja muni úr gulli, silfri eða platínu án stimpla sem segja til um hlutfall eðalmálma. Stimpillinn 925s segir að blandan sé 92,5% hreint silfur. Á Íslandi hefur Félag ķslenskra gullsmiða, frá 1924, gætt hagsmuna neytenda svo fremi að verslað sé við félagsmenn.


Kórundum Al2O3
Allt fram á miðaldir þekktu menn aðeins bláan kórundum. Þegar uppgötvaðist að fleiri litbrigði væru til var það bláa kallað safír. Safír heitið er einnig notað um önnur litbrigði en það rauða sem kallast rúbín. Bestu safírarnir koma frá Kasmír. Aðrir eru ýmist of dökkir eða of ljósir. Bestu rúbínarnir koma frá Búrma, rúbínar finnast reyndar einnig á Grænlandi. Snemma á þessari öld fóru menn að framleiða gervi rúbína og safíra. Hörkustig kórundum er 9, aðeins demantur er harðari með hörkustig 10.


Blóðsteinn Fe2O3
Hefur verið mjög vinsæll í skartgripum síðustu ár. Þrátt fyrir glansandi svart yfirborðið verður blóðsteinn rauður þar sem hann rispast, virðist blæða ef vatn kemst í sárið. Er þar komin skýringin á heiti hans, það er dregið af latneska orðinu haima sem merkir blóð. Í duftformi er blóðsteinn nýttur sem litunarefni og í pólermassa (krókus). Hörkustig blóðsteins er 5,5-6,5. Meginuppistaða járnforða heimsins er á forminu Fe2O3


Peter Carl Fabergé 1846-1920
Fæddist í St. Pétursborg og tók við verkstæði föður síns 1870. Hann var afkomandi Húgenotta og hlaut menntun sína í Þýskalandi, Ítalíu, Frakklandi og Englandi. Fabergé og gullsmiðir hans smíðuðu ótrúlega fíngerða muni unna af mikilli hugmyndaauðgi fyrir evrópska og asíska þjóðhöfðingja fram að rússnesku byltingunni. Þekktastur er hann fyrir smíði hinna stórkostlegu páskaeggja fyrir keisara Rússlands. Fabergé lést í úrlegð í Sviss eftir að verkstæði hans hafði eyðilagst í átökum byltingarinnar.


Í Atlasfjöllum Norður-Afríku búa Berbar. Þeir eru ljósari á hörund en Arabar og bláeygðir. Margar misheppnaðar tilraunir hafa verið gerðar til að innlima Berba í samfélag Araba. Frelsisþrá Berba hefur haldið lífi í fornum menningararfi þeirra. Hluti þess arfs eru geysifagrir skartgripir sem kvenþjóðin ber og endurspegla þjóðfélagsstöðu. Ámóta listasmíði kemur fram í reiðtygum og hnífum karlmanna enda eru Berbar þekktir fyrir kunnáttu í reiðmennsku.


Allt til ársins 1873 álitu menn að arfsögnin um Tróju væri skáldskapur. Það ár fann Þýðverski fornleifaævintýramaðurinn Heinrich Scliemann í rústum mikils virkis á Eyjahafsströnd Tyrklands gríðarlegan fjársjóð. Hin stórkostlegu gull- og silfurdjásn renndu stoðum undir að á þessum stað hefði eitt sinn staðið mikið menningarríki. Í dag deila Rússar og Þjóðverjar um Trójugullið sem Rússar tóku herfangi í Berlín eftir fall 3. ríkisins. En vonandi endar það ferðalag sitt í heimahögunum þar sem það lá óhreyft eitthvað á 4. árþúsundið.


Björn leturgrafari
var einn þeirra manna er settu svip á bæinn um miðja þessa öld. 1936 fékk hann leyfi Páfagarðs til að teikna innsigli Meulenbergs biskups kaþólskra hér á landi. Eftir að hafa smíðað innsiglið fór hann á fund Páfa sem blessaði það og bauð Birni vinnu sem leturgrafari Páfagarðs. En í bænum við sundin beið íslensk stúlka, því voru það Ķslendingar sem nutu starfa Björns. Björn lést árið 1971. Sonur hans Ívar hefur á lofti merki hans sem meistarasmiður og leturgrafari til dagsins í dag.


Nokkrir eiginleikar málma

Mesta rafleiðni Mesta hitaleiðni Mestur teygjanleiki
1. silfur 1. silfur 1. gull
2. kopar 2. kopar 2. silfur
3. gull 3. gull 3. platína
4. ál 4. ál 4. járn
5. sink 5. nikkel 5. kopar
6. nikkel 6. járn 6. ál
7. járn 7. tin 7. nikkel

Gullúnsu má draga í 1,5 km langan vír.  Ešalmįlmar eru viktašir eftir męlikerfi sem kennt er viš borgina Troyes ķ Frakklandi.  Troyes śnsa er 31,10gr.


Perlur
Náttúruperlur eru sjaldgæfar og oft afar verðmætar, þessvegna hafa menn tekið upp á því að rækta perlur t.d. í Kína, Japan og Ástralíu. Perlur unnar úr skeljamassa eru bara plat og jafnast á engan hátt við þær sem náttúran sjálf mótar. Þar sem perlur eru lífrænar eru þær viðkvæmar. Góð regla er að setja þær upp eftir að förðun er lokið. Ráðgjöf um umhirðu og sérstök hreinsiefni fást hjá öllum góðum gullsmiðum.


Metalurgy
Að áliti ýmissa vísindamanna var einn helsti veikleiki farþegskipsins Titanic stálið sem það var smíðað úr. Sú vísindagrein sem fæst við málma er kölluð málmfræði. Upphaf þessarar vísindagreinar er rakið aftur til ársins 1864 er menn fóru að rannsaka stál með smásjá. 1925 með tilkomu Röntgenskoðunar eykst bæði skilningur manna til muna á byggingu og eiginleikum málma og um leið öryggi í samgöngum.


Öfug hallarbylting
Laugardaginn 14. mars 1998 var haldinn aðalfundur Félags Íslenskra Gullsmiða. Þargerðist sá merki atburður að kosin var stjórn eingöngu skipuð konum undir formennsku Höllu Bogadóttur. Sigurður G. Steinþórsson fráfarandi formaður nefndi atburðinn öfuga hallarbyltingu þar sem helstu hvatamenn voru karlmenn og þ.á.m. Sigurður sjálfur. Ein kona hefur áður verið formaður þ.e. Dóra Jónsdóttir Dalmannssonar sem varð fyrst kvenna
á Norðurlöndum formaður fagfélags gullsmiða.


Gullsmíði er oft í gríni og alvöru talin önnur elsta starfsgrein mannkyns. Haganlega gerðir skartgripir voru smíðaðir fyrir 5000 árum. Stór hluti gulls og silfurs sem notað er, er endurunnið úr gömlum og slitnum munum. Hugsanlega hafa skartgripir forfeðra okkar, er numu landið, innihaldið brot af þeim 30 silfurpeningum sem greiddir voru Júdasi. Aðferðir við smíði eru í mörgu ævafornar en verkfærin þróast og nú nýverið opnaði fyrsta íslenska skartgripaverslunin á internetinu.
www.centrum.is/gull


Karl Guðmundsson
myndskeri frá Þinganesi lærði tréskurð hjá Ríkarði Jónssyni. Uppúr 1936 þegar Guðlaugur A. Magnússon hefur framleiðslu á silfurborðbúnaði, hannar Karl borðbúnaðarmynstur sem enn eru framleidd og eftirsótt. Einnig hannar hann ýmsa minjagripi og skart sem einkennist af hinu sér íslenska höfðaletri og margslungnum fléttum. Í fornsögurnar sækir hann efni í skartgripi einsog armband eitt mikið sem vakti mikla athygli á handverkssýningu í Laugardalshöll nýverið. Þar er efniviðurinn Njála. Segja má að hönnun Karls sé þegar orðir sígild þar sem listfengi og djúpar rætur hins íslenska tréskurðar móta listmuni sem standa af sér alla strauma og stefnur.


Húsráð
1908 var sótt um einkaleifi í Bretlandi fyrir Polvit plötuna sem hreinsar bæði gull og silfur sem fallið er á. Fram til þessa hefur aðferðin aðallega verið notuð af antiksölum. Aðferðin er fólgin í því að setja plötuna í skál (ekki úr málmi) með upphituðu vatni (ekki hitaveituvatni) með matarsóda í. Munirnir sem hreinsa á eru settir á plötuna og dýft í vatnið og þeir hreinsast á nokkrum mínútum. Í stað plötunnar (sem fæst hjá ýmsum gullsmiðum) má ná svipuðum árangri með álpappír. Gæta verður þess að skola hlutina strax og þurrka vel þegar þeir koma uppúr baðinu.


Verðlaunasamkeppni úraframleiðenda
Árlega er haldin samkeppni um bestu úrin á Frönskum markaði, bæði Frönsk og innflutt. Dómnefndina skipa fjölmiðlafólk, seljendur og úraframleiðendur. Tilnefningar voru 156 í ár, af þeim keppti 21 úr til úrslita, 3 í hverjum flokki. Á þessu ári varð sú nýbreytni að eitt úr var valið úr hópi sigurvegara allra flokka af neytendum. Sigurvegari allra flokka er "Chronograph" frá Pierre Lannier, einum fremsta úraframleiðanda í Frakklandi sem þekktur er fyrir listræna hönnun og gæði.


Lapis Lazuli - er mikið notaður í skartgripi enda vinsæll og fallegur steinn. Heitið er dregið af  "Lapis" = steinn og "Lazuli" = Blár. Þessi fagri, blái steinn hefur verið eftirsóttur í 6000 ár og er enn unninn í námum er tilheyrðu hinu mikkla ríki er kennt var við hina fornu borg Babýlon.
Forn Egyptar tengdu Lapis Lazuli við réttlæti og báru dómarar steininn sem sannleikstákn. Einnig notuðu Egyptar Lapis Lazuli sem augnfarða í duftformi og má því ætla að Kleópatra hafi borið hann á sig þegar hún vildi heilla rómversk fyrirmenni. Lapis Lazuli er sagður bæta ýmis augnmein, astma og róa taugarnar sem ekki veitir af í hraða lífsins. Hörkustig Lapis Lazuli er 5-6 á Mohs kvarða.


Punica granatum er nafn sem Fönikíumenn gáfu steini sem þekktur er undir heitinu Granat. Þekktasta afbrigði hans Pyrop (eldur) er dökkrautt og finnst m.a. í Síberíu, Tanzaníu, Indlandi og Ástralíu. Í Bæheimi hafa menn numið Pyrop og notað í skartgripi í 500 ár. Ýmis átrúnaður tengist Granat, hann er sagður verja þann er skartar honum gegn húðsjúkdómum, slæmum draumum og því illa. Ennig njóta þeir ástar og tryggðar er bera Granat og ærin ástæða fyrir íslenska karlmenn að tryggja stöðu sína þegar ásókn erlendra í íslenskt kvenfólk hefur sjaldan verið meiri. Hörkustig Granats er 6,5 - 7,5 á Mohs kvarða.


Sú aðferð að steypa í mót sem gert er utanum vaxmynd sem síðan er brædd úr mótinu er þekkt allt frá dögun siðmenningarinnar í Mesópótamíu. Svo virðist sem þessi tækni hafiþróast sjálfstætt hjá ýmsum menningarsamfélögum víða um heimskringluna s.s. á 13. öld f.kr. í Mið-Ameríku og Afríku. Á bronsöld náðu menn á Norðurlöndum ótrúlegri leikni og steyptu m.a. hljómlúðra með örþunnum veggjum. Einn helsti sérfræðingur okkar í sögu málmsteypunnar Jörmundur Ingi alsherjargoði telur að ekki sé um samjöfnuð að ræða við þessa steyputækni fyrr en á okkar öld.


Árið 1997 jókst sala í Bandaríkjunum um 18% frá 1996 á borðbúnaði og gjafavöru (ekki skartgripum) úr sterling silfri. Heildarsalan 1997 var 41 milljarður króna, 23 milljarðar gjafavara og 18 milljarðar borðbúnaður. Stór hluti þessa eru brúðargjafir en aukningin var þó meiri á öðrum sviðum. Kertastjakar, rammar. bréfahnífar, minjagripir og skírnargjafir (barnaskeiðar o.þ.h.) úr sterling silfri njóta nú meiri vinsælda en fyrr. Hér á landi hefur einnig orðið vart aukinnar sölu á munum úr silfri sem er gleðiefni þar sem stærstur hluti þeirra er framleiddur á Íslandi. Hins vegar eru húðaðir munir undantekningarlaust innfluttir. Þessi þróun eflir því innlendan listiðnað á kostnað innflutnings.


Norðan heiða býr Guðmundur nokkur Bjarnason. Hann hefur unnið sér margt til ágætis m.a. er hann stórtækur steinasafnari og hefur auk þess mótað marga listmuni af kunnáttu úr íslenskum steinum. Einn þeirra steina sem hann hefur mætur á er Mugearít. Sá steinn finnst aðeins á Írlandi og á Íslandi. Mugearít er svartur steinn með ljósum doppum (Plagíóklas) . Um eiginleika hans er fátt vitað en hann finnst við eldstöðvar og gæti þess vegna tendrað tilfinningarbál í köldum mörlandanum. Hörkustið: 5,5 - 6


Þeir fórna börnum fyrir baunadisk
Rannsóknir í Japan hafa sýnt fram á skaðleg áhrif notkunar plastborðbúnaðar. Um 20% skóla í Japan nota plastborðbúnað og hefur gætt nokkurs titrings meðal almennings af þessum sökum.


Sitt er beinið úr hverri tíkinni
"Að kaupa lúxusvöru er leið til þess að auðga lífið" er haft eftir John Loring yfirhönnuði Tiffany´s. Hann bætir við "þetta snýst um að eiga það sem mann langar til en ekki það sem maður þarf".


Á þessu ári hafa fallið frá 2 listamenn sem markað hafa spor í gullsmíði á Íslandi með óvenjulegu efnisvali og mikilli hugmyndaauðgi. Það eru félagarnir Gunnar Malmberg og Dieter Roth. Á 6. áratugnum gerðu þeir ýmsar merkar tilraunir sem margar þykja framandi enn í dag. Á sýningu sem haldin var 1960 á Holtinu mátti sjá umbrot sköpunarinnar. Sýningin vakti fádæma athygli og hneykslan margra. Á þeirri sýningu hlaut Gunnar verðlaun fyrir veggmynd sína , Tvíburarnir.


Ti
Titan hefur mannkynið þekkt frá því 1791 og er það 9. algengasta frumefni jarðar. Það hefur verið á almennum markaði síðan 1947 er ný aðferð við greiningu þess kom fram, svokölluð Kroll -greining. Títan er mjög léttur málmur, harður og tærist ekki. Annar veigamikill kostur er sá að Títan er algerlega laus við að valda ofnæmi og er því mikið notaður í allskyns "varahluti" í mannfólkið. Af þessu má sjá að Títan er kjörinn málmur í úr og skartgripi en þar sem bræðslumarkið er mjög hátt og ekki hægt að kveikja Títan saman með venjulegum áhöldum úra-og gullsmiða, eru úr og skartgripir úr Títan ennþá sjaldgæfir.


Kolefni er 6. frumefni lotukerfisins. Það á sér tvennskonar kristallagerð. Önnur er Grafít, mjúkt, dökkgrátt og glansandi efni. Grafít leiðir vel rafmagn og er einnig notað í deiglur, blandað leir. Grafít er það efni sem notað er í skriffærin sem við köllum blýanta.
Hin kristallsgerð kolefnis er demantur. Demantur er harðasta efni sem þekkt er. Auk þess að vera notaður í skartgripi er demantur mikið notaður í skurð- og slípiverkfæri.
Meðal frægustu demantanna er Koh-i-noor sem tilheyrir krúnudjásnum Bretaveldis og Cullinan sem skorinn var í 105 minni steina. Frá 1955 hefur maðurinn framleitt demanta til iðnaðarnota.


Silfurskeiðin
Mánudaginn 9. nóvember s.l. fór fram í Fossvogsskóla verðlaunaafhending í samkeppni 11 og 12 ára barna um jólasveinaskeiðina í ár. Mjög erfitt reyndist að velja út tillögum því hugmyndaauðgi barna er mikil og sköpunargleðin ekki minni. Fyrir valinu varð tillaga Ívars Orra nemanda í hópi 12 í Fossvogsskóla. Ívar Orri fékk vegleg verðlaun og öll fengu börn in viðurkenningarskjal. Í ár er það Hurðaskellir sem prýðir silfurskeiðina sem er sú 7. í röðinni.
Fyrri sveinar eru ásamt Hurðaskelli fáanlegir í gullsmíða - og gjafavöruverslunum víða um land.


Mikill kraftur hefur verið í starfi stjórnar gullsmiðafélagsins sem skipuð er vöskum konum undir stjórn Höllu Bogadóttur. Nú nýverið stóð stjórnin fyrir námskeiðum og voru fengnir til landsins sérfræðingar í steinafræði og innfatningum frá Finnlandi. Vegna þess hve vel tókst til stefnir stjórnin að auknum samskiptum við Finna sem getið hafa sér gott orð á þessu sviði. Lokapungtur námskeiðanna var haustfagnaður félagsins sem haldinn var á Nesjavöllum. Þar skemmti fjöllistamaðurinn Tómas Malmberg og félagar í gullsmiðabandinu við mikla hrifningu innfæddra sem og gestanna frá Finnlandi.


Mánaðarsteinar hafa verið vinsælir lengi þótt þeir spili ekki sömu rullu í daglegu lífi manna og áður fyrr. Að neðan eru 2 kerfi (þó ekki tæmandi) sett saman af tveimur mætum mönnum:

George Frederick Kunz: Guðmundur Bjarnason:
Janúar Granat Vatnsberi Jaspís, grænn
Febrúar Ametyst Fiskar Ónyx
Mars Blóðsteinn Hrúturinn Jaspís, rauður
Apríl Demantur Nautið Jaspís, ljósrauður
Maí Agat Tvíburarnir Geislasteinn
Júní Smaragður Krabbinn Glerhallur
Júlí Rúbín Ljónið Jaspís, brúnn
Ágúst Carnelían Meyjan Mjólkurkvars
September Safír Vogin Mosajaspís
Október Ópall Sporðdreki Hrafntinna
Nóvember Tópas Bogamaður Blágrýti
Desember Túrkós Steingeitin Mánasteinn


Talið er að Etrúrar hafi komið frá Lydiu (V-Tyrkl.) um 1200 f.kr. eða um það leyti er Tróju- stríðið stóð. Velmegun þeirra náði hámarki á 6. öld f.kr. og byggðist að hluta á þekkingu þeirra á málmsmíði. Etrúrar fluttu út gullmuni einhverja þá fegurstu í fornöld. Stórfenglegar bronsstyttur sýna yfirburði þeirra bæði tæknilega og listræna. Þekkingu þeirra nýttu Rómverjar og tóku í arf er veldi Etrúra hnignaði og var að lokum innlimað í Rómarveldi í valdatíð Súlla sem uppi var 138-78 f.kr.


Í ársbyrjun fyrir réttum 75 árum hóf Guðlaugur A. Magnússon gullsmiður starfsemi sína á Ísafirði með gull- og silfursmíðaverkstæði ásamt tilheyrandi verslun með framleiðslu verkstæðisins. Til Reykjavíkur flutti verkstæðið 1927 og hefur starfað þar síðan. Árið 1936 er hafin framleiðsla á borðbúnaði úr silfri og fyrsta vélin var keypt í janúar sama ár sem var pressa smíðuð af Vélsmiðjunni Héðni. Þess má geta að árið 1946 framleiddi smiðjan úr 497 kg af silfri 925/1000 sterling og ennfremur út 3 kg af gulli. Starfsmenn voru þá 8. Einn þeirra, Reynir sonur Guðlaugs, hefur frá 1952 verið meistari smiðjunnar.


Íslenskir gullsmiðir hafa löngum smíðað mikið af silfurborðbúnaði. Áður fyrr voru það helst skeiðar s.s. teskeiðar og matskeiðar þar sem skaftið var handgert en blaðið slegið í blýmót með stálstansi. Enn í dag eru stærri skeiðar einsog grautaskeiðar smíðaðar á sama hátt en minni skeiðar slegnar í stálstönsum í öflugum höggpressum. 12-15 mynstur eru í framleiðslu í dag, nær öll hönnuð af Íslendingum. Íslensku mynstrin eiga flest rætur sínar í tréskurðarlist. Sú listgrein hafði þróast í árþúsundir áður en landnámsmenn fluttu hana með sér til Íslands. Íslenskur borðbúnaður er einstakur og fullyrða má að hann standi jafnfætis ef ekki framar því besta sem þekkist meðal annarra þjóða enda er hönnun hans og handverk hluti ævaforns menningararfs okkar.


Raf er efni sem myndað er úr harpix sem runnið hefur af barrtrjám við Eystrasaltsstrendur Þýskalands, Póllands og Prússlands fyrir Ísöld. Oftast er raf hálfgagnsætt, gul- eða brúnleitt en einnig finnst það gráleitt, grænt eða blátt. Víkingar notuðu raf í skartgripi og eru frændur vorir Danir enn í dag hrifnir af þessu efni og nota mikið. Margir Danir trúa á lækningamátt rafs og lesa má um þann þátt á netinu: www.lfdk.dk/jack/healing.htm Af einhverjum orsökum hefur raf ekki náð miklun vinsældum hér á landi en þó eru nokkrir gullsmiðir að selja skart með eða úr rafi. Hörkustig=2,5 á Moh´s kvarða.


Ævirúnir
S.l. 6 ár hefur listamaðurinn Haukur Halldórsson ferðast um norður Evrópu í leit að ævirúnum eða prímrúnum. Áður en nútímadagatal var tekið upp voru prímrúnir notaðar um alla norður Evrópu. Í þá daga hét hver einasti dagur ársins sínu nafni og hverjum degi fylgdi ákveðin regla eða hefð og tákn (prímrún). Í dag er leitin á enda og af því tilefni kynnir Haukur afraksturinn í Kolaportinu um helgar. Gegn vægu gjaldi geta menn þar fengið á skjali umsögn og prímrún síns afmælisdags. Einnig er hægt að fræðast nánar um prímrúnir á netinu: www.islandia.is/primrun


Ópall
Nafnið er dregið af  “upala“ sem er úr Sanskrít og merkir gimsteinn. Litadýrð eðalópala er mikil. Einkum eru það rauðir, bláir og grænir litir sem ópallinn skartar. Ástæðan fyrir litadýrðinni er vatnsinnihald ópalsins sem er frá 1% uppí 15% af heildarþyngd steinsins.
Minnki vatnsinnihaldið minnkar styrkur steinsins og litadýrðin dvínar. Til að koma í veg fyrir það er gott ráð að leggja steininn í ungbarnaolíu af og til. Ópall finnst víða um norður, mið og suður Ameríku og í suður Afríku og síðast en ekki síst í Ástralíu. Hörkustig= 5,5- 6,5 á Moh´s kvarða.


Hlutfall milli silfur- og gullverðs hefur rokkað kringum 35:1 lengi vel. Minnstur munur á síðari árum er 10:1. Ástæðan var tilraun Hunt bræðranna árið 1980 til að kaupa upp silfurbirgðir og ná þannig stjórn á silfurmörkuðum. Hunt bræður höfðu efnast á olíuviðskiptum í Texas og voru milljarðamæringar þegar ævintýrið hófst. “Svo er auður sem augabragð“ og áætlunin fór útum þúfur, bræðurnir voru orðnir “bara“ milljónamæringar. Ævintýrirð olli miklum varanlegum samdrætti í silfursmíði, á Norðurlöndum er talið að samdrátturinn hafi numið 80%. Á síðasta ári komst hlutfallið uppí 60:1 og sýndi öfgarnar í gagnstæða átt. Talið er að silfurverð muni hækka á þessu ári þar sem eftirspurn er mun meri en framleiðsla. 2/3 hlutar árlegrar silfurframleiðslu fara til iðnaðar og 1/3 í listmunasmíði en 84% gullframleiðslunnar fer til listmunasmiða.


Einsog flestum er kunnugt þá fellur á silfur, m.ö.o. það oxast. Því verður að pússa það af og til. Færri vita að það sama gildir um lægri gullblöndur einsog 8 og 9 karata gull. Ástæðan er sú að silfurmagnið í þeim er hátt eða allt að 40% í sumum blöndum (legeringum). Það er regla gullsmiða að benda viðskiptavinum á þessa staðreynd. þrátt fyrir það gerist það stöku sinnum að viðskiptavinir telja sig svikna þegar falla tekur á muni úr 8 og 9k gulli. Megnið af því gulli sem selt er í innkaupalistum er 8 og 9k og oft eru gripirnir efnisrýrir í þokkabót. Því er best að kaupa gullskart úr 14k gulli eða þar fyrir ofan hjá íslenskum gullsmiðum, að sjálfsögðu, handsmíðað og efnið ekki til sparað. Það "dýra" verður oft ódýrara þegar upp er staðið.


Nýverið var haldinn aðalfundur Félags ķslenskra gullsmiða. Kvennastjórn var endurkjörin undir formennsku Höllu Bogadóttur. Stjórnarinnar bíða mörg verkefni því FÍG verður 75 ára í haust og má landinn eiga von á ýmsum uppákomum af því tilefni. Fyrsta stjórn félagsins var kjörin á stofndegi þess, 19. október 1924 og var hún þannig skipuð: formaður Jónatan Jónsson, ritari Árni B. Björnsson og gjaldkeri Guðmundur Guðmundsson.


Silfur er þekkt sem sótthreinsandi efni (AgNO3) og því kom það gullsmiðum Ernu ekki á óvart þegar á fjörur þeirra rak fróðleik um lækningamátt þess. Með rafgreiningu er hreint silfur (999/1000) leyst upp í vatni blönduðu hreinu sjávarsalti. Vatnið er drukkið og berast agnirnar sem eru örsmáar eða 0.00001 míkron um allan líkamann í 1 viku á eftir og bæta, hressa og kæta. Ef slegið er inn “collodial silver“ á t.d. “AltaVista“ leitarvélinni á netinu má fræðast nánar um þennan eiginleika eðalmálmsins og þá fjölmörgu sjúkdóma sem hann vinnur á.


Í nýlegu viðtali við John Price forseta samtaka borðbúnaðarframleiðenda í Evrópu (FEC), lýsir hann miklum áhyggjum vegna vaxandi samkeppni frá Asíu. Honum segist svo frá: “Innan 10 ára verður þessi iðnaður hruninn verði ekkert að gert. Megin ástæðan er launamunur. Tímakaup í Evrópu er jafnt vikulaunum í Asíu. Evrópa er að verðleggja sig útaf mörkuðum með launastefnu sinni, það verður engin sanngirni í launamálum ef ekkert er að gera. Til að stöðva þessa þróun þurfa evrópsk fyrirtæki að bæta þjónustu, ríkisstjórnir og Evrópubandalagið þurfa að koma að þessum málum einnig. Óhæft er að asískir framleiðendur geti flutt vöru sína til Evrópu og látið stimpla þar sem evrópska framleiðslu og villt þannig fyrir neytendum sem telja sig treysta störf og njóta gæða evrópskrar framleiðslu“.


2 ungir íslendingar hafa hannað forrit sem skeytir saman mörgum rúnum í eitt tákn. Þessi aðferð við “ritun“ rúna er ævaforn. Í framhaldi að hönnun forritsins hafa þeir hafið framleiðslu á menum sem skreytt eru bandrúnum sem segja frá tilurð rúnaleturs í árdaga. Í miðju mensins er handgrafin bandrún sem táknar nafn eigandans. Kaupendahópurinn er fyrst og fremsterlendir ferðamenn. Menið er sérlega fallegur skartgripur og er ekki síður ætlaður íslendingum.
Hægt er að fræðast nánar um bandrúnir á netinu: www.alrun.is


Silfurstimplar voru upphaflega ætlaðir til þess að tryggja hagsmuni þeirra er fjárfesta í silfurmunum. Stimpillinn 925s segir að blandan sé 92.5% hreint silfur. Í dag eru silfurstimplar ekki síður gagnlegir við að ákvarða aldur muna og staðinn sem gripurinn var framleiddur á. Á heimasíðu Ernu eru upplýsingar um helstu stimpla og ágrip af sögu stimplalaga í Evrópu.


Malakít er fagurgræn steintegund sem inniheldur kopar. Hann er mikið notaður í skrautmuni og til útskurðar. Malakít finnst í Úralfjöllum, Ástralíu, N-Ameríku og Afríku þar sem stærstur hlutinn fer til koparvinnslu. Malakít er sagður létta konum barnsburð, vernda ungbörn og auðvelda þeim tanntöku. Í fornöld var hann mulinn og notaður sem augnfarði. Hörkustig 4–5 á Mohs kvarða.


Jörmundur Ingi allsherjargoði hefur hannað minnispening í anda víkingatímans. Tilefnið er að þúsöld er liðin frá því að siglingar hófust til Vínlands. Peningurinn er sleginn hér á landi (að sjálfsögðu) úr silfurblöndu sem algeng var á tímum víkinga. Stansinn var handgrafinn með samskonar verkfærum og forfeður okkar notuðu. Miðgarður gefur peninginn út og hægt er að fræðast nánar um hann á netinu: midgard.is


Í „Öldinni Átjándu” sem Jón Helgason tók saman má lesa um Jón gullsmið Ólafsson. Hann bjó í Lögmannshlíð í Eyjafirði. Var það mál manna að hann gæti smíðað hvern hlut sem hann eitt sinn augum leit. Í janúar 1781 leitaði fátækur húsmaður sem þjáðist af vatnssýki á hans náðir. Smíð-aði Jón sér lítinn bíld og stakk gat á kviðarhol mannsins, smeygði í það fjöðurstaf og lét renna út á að giska einn pott. Að því búnu setti hann tappa í stafinn og batt um sem vandlegast. Daginn eftir lét hann renna álíka mikið. Þetta endurtók hann daglega uns ekki vætlaði út um fjöðurstaf-inn. Skömmu síðar gekk sjúklingurinn frískur að verki sem aðrir menn.


„Jólavertíðin” er aðalvertíð gullsmiða. Margar verslanir byggja afkomu sína að verulegu leyti á sölu desembermánaðar. Gullsmiðir vinna því dag og nótt þann tíma sem vertíðin varir. Þeir sem hyggjast láta gera við skartgripi eða silfurmuni fyrir jól ættu því að heimsækja gullsmiðinn sinn tímanlega. Þannig getur smiðurinn sinnt verkefninu að alúð í ró, eins og heppilegast er bæði fyrir hann og viðskiptavininn.


Fjöllistamaðurinn og hönnuðurinn Tómas Malmberg hefur hannað kross sem táknar þau merku tímamót sem eru á næsta leiti. Tómas hefur getið sér gott orð erlendis og hannað skartgripi fyrir ýmsa þekkta framleiðindur. Smíðin er í samvinnu Tómasar og gullsmiðjunnar G15. Ætla má að allir þjóðhollir gullsmiðir bjóði þennan fagra grip í samkeppni við botnlausan innflutning. (des.99)


Í bók Gils Guðmundssonar „Öldin sem leið-minnisverð tíðindi 1801–1860” er sagt frá görpum úr Reykjavík sem 1823 tóku sig saman og fóru vestur að Borg á Mýrum. Þar vildu þeir grafa sér upp fé og frægð og ná í kistuhólkinn þanner segir frá í Eglu. Fyrra daginn furndu þeir hring við mó-bergs klöpp á vídd við op á stóru staupi. Víða þóttust þeir sjá málmlit á berginu og héldu þar því fram greftrinum hinn seinna daginn. Sáu þeir stein mikinn eða klett lausan á berginu og undir honum grifju, líkasta til að hafa geymt féð en halda þetta sé einhvern tíma fyrri burthorfið.


Í fróðleiksmolum frá júlí á s.l. ári var sagt frá John Price forseta samtaka borðbúnaðarframleiðenda í Evrópu (FEC). Hann spáði því að innan 10 ára yrði borðbúnaðarframleiðsla hrunin í Evrópu. Um þessar mundir er verið að flyrja hluta hinna fornfrægu silfursmiðja Georg Jensen í Danmörku til Thailands. Georg Jensen (1866–1935) var myndhöggvari þar til hann sneri sér að silfursmíði í Kaupmannahöfn 1904. Starf hans færði Dönum viðurkenningu sem einir fremstu silfursmiðir heimsins. Á Íslandi hefur smíði silfurmuna aukist jafnt og þétt s.l. 5 ár og útlit fyrir áframhaldandi vöxt meðan stöðugleiki varir. Hugsanlega mun framleiðslan ná því sem var fyrir 1980 þegar kreppa herjaði á silfursmiðjur um allan heim í kjölfar tilraunar Hunt bræðranna til að ná stjórn á silfurmörkuðum (nánar um þá í fróðl.molum nr. 43). (jan.2000)

 


Gullsmišir stunda išju sķna mešan žeir halda sęmilegri heilsu. Oft eru žeir fram į nķręšisaldur ķ fullu starfi. Žrįtt fyrir smį kölkun geta žeir smķšaš fallega muni. Eitt sinn kom eldri kona innį verkstęši fulloršins gullsmišs og fór aš spjalla viš hann. Ég er viss um aš ég geti sagt til um aldur žinn". “Hvernig feršu aš žvķ“, spyr smišurinn. Konan svarar: “Stattu upp“ og bętir viš: “faršu svo śr buxunum“. “Žś ert 87 įra“, segir konan. “Hvernig séršu žaš“, spyr gullsmišurinn.Konan svarar: “žś sagšir mér žaš ķ sķšustu viku“. 

 


El Dorado
Bógóta höfušborg Kólombķu var stofnuš 1538 af ęvintżramönnum sem leitušu gulllandsins. Muska indķįnar höfšu sagt Spįnverjum sagnir af gullnum mönnum sem sökktu gulli og gersemum ķ Guatavita vatn skammt frį Bógóta. Indķįnarnir töldu vatniš heilagt og aš žar byggi vęttur sem žeir vildu friša. Žessi upphaflega sögn breyttist meš tķmanum og “stašsetning“ El Dorado einnig. Menn leitušu žvķ gulllandsins vķša um Sušur Amerķku. Hundruš manna hafa tķnt lķfi ķ žessari leit en hvergi hefur fundist gull nema ķ Guatavita.

 


Palladķum (Pd)
William Wollaston (1766-1828) uppgötvaši palladķum įriš 1803. Palladķum tilheyrir, įsamt platķnum, ródķum, rśženķum, iridķum og osmķum, svoköllušum platķnumįlmum. Einkenni žessa flokks eru hįtt bręšslumark, mikil harka og gott višnįm gegn tęringu. Palladķum mįlmblöndur eru notašar ķ skartgripi, tannvišgeršir og ķ lįgstraums rafmagnstengi. Vegna spįkaupmennsku og sögusagna um litlar birgšir hefur verš į palladķum rokiš upp undanfariš og er žegar žetta er skrifaš rśmlega 2-falt gullverš. Tališ er aš veršiš muni, žrįtt fyrir aš vera ķ sögulegu hįmarki, hękka um 50-60% į nęstu dögum. 

 


Navaho Indķįnar ķ sušvesturrķkjum BNA eru stęrsta Indķįnažjóš Bandarķkjanna (160.000/1987). Žeir trśa žvķ aš allt sem lifir, skordżr, fuglar, tré, frę og jafnvel fjöll séu óašskiljanleg heild sem mašurinn sjįlfur er žįttur ķ. Allir žęttirnir eru jafnir og heilagir ķ žeirra augum. Žeir fagna nżrri įrstķš meš dansi og skarta bśningum sem tįkna einhvern žessara lifandi žįtta. Navahoar eru žekktir fyrir listręnan vefnaš og skartgripagerš. Gimsteinar eins og tśrkós, onyx, 
granat og malakķt eru algengir ķ silfurmunum žeirra. Ķslenskur listamašur, Haukur Halldórsson, dvaldi um skeiš mešal Navahoa og nam m.a. sandmyndagerš sem žeir eru žekktir fyrir.

 


2 ungir gullsmišir žęr Helga Ósk Einarsdóttir og Alexandra Thorn, frį Svartaskógi, hafa sett į stofn verkstęši og leggja megin įherslu į vķravirki. Žaš eru glešitķšindi aš gamalt ķslenskt handverk skuli sett ķ öndvegi nś viš dagrenningu nżrrar aldar. Óšinn forfašir okkar germanna kom ķ įrdaga frį Hellusundi (hinu syšra), žaš er žvķ viš hęfi aš verkstęši žeirra stallsystra er viš
Hellusund (hiš nyršra) ķ Reykjavķk:

 


Um mišja sķšustu öld unnu saman į verkstęši 4 gullsmišir, 1 kona og 3 karlar, viš Hverfisgötu ķ Reykjavķk. Žaš var nokkuš žröngt um žį eins og algengt var ķ žį daga. Engin salernisašstaša ž.a. karlarnir pissušu ķ skįl, sem žeir losušu śr ķ vask, en gęttu žess žó aš snśa baki ķ kvenmanninn. Ķ žį daga vandi komur sķnar į verkstęšiš žekktur gullsmišur til žess aš fį aš gylla żmsa muni sem hann hafši smķšaš. Eitt sinn er meistari verkstęšisins hafši létt į sér ķ skįlina góšu, en hafši ekki gefiš sér tķma til aš losa śr henni, kom įšurnefndur gullsmišur og vildi fį aš gylla. Hann kom auga į ķlįt, greip um žaš og sagši: “nś var ég heppinn, gyllingin er ennžį volg“. Hófst hann handa viš aš gylla en į hann runnu tvęr grķmur žegar meistarinn kom og spurši: “hvaš ertu aš gera meš hlandskįlina mašur“.

 


Réne Lalique 1860-1945
Rak gullsmķšaverkstęši ķ Parķs og var einn helsti forkólfur Art Nouveu stefnunnar. Hann starfaši fyrir fķna og fręga fólk žess tķma eins og t.d. Söru Bernhardt. Einnig hannaši hann m.a. glervasa og ilmvatnsglös. Ilmvatnsglösin hannaši hann fyrir Coty, Worth, Forvil, Houbigant o.fl. Slķk glös kosta ķ dag stórfé og eru eins og vasar eftir hann mjög eftirsótt af söfnurum og fagurkerum. 
Dęmi eru um aš ilmvatnsglös eftir hann hafi selst į 6.000.000 króna og aldrei aš vita nema eitt slķkt leynist ekki hjį ömmu gömlu!

 


Ungir hönnušir
15. Alžjóšlega Hugmyndasamkeppnin fer fram į sżningunni Biennial Intereur sem haldin veršur ķ Brussel nęsta haust (2000). Samkeppnin į aš hvetja til dįša unga hönnuši. Hęgt er aš senda inn „prótótżpur“ til 15. jślķ. Sżningin er opin nemum, hönnušum, hönnunarhópum og skólum. Veršlaunin eru 35.000 evrur. Nįnari upplżsingar eru veittar ķ sķma (00) 32-56 22 95 22/fax (00) 32-56 21 60 77

 


Įsatrśarmenn hafa lįtiš slį minnispening til aš fagna 1000 įra afmęli landafunda vķkinga ķ Vesturheimi. Žeir munu selja bęši kopar og silfurpeninga slegna aš hętti vķkinga. Hęgt veršur aš nįlgast peningana ķ versluninni “hjį Magna“ į Laugavegi. Jörmundur Ingi alsherjargoši hannaši peninginn.

 


Ķ įrlegri samkeppni sem stofnun sem kennd er viš Fabergé heldur įr hvert hlaut ungur ķslenskur gullsmišur Gušbjörg Ingvarsdóttir 1. veršlaun. Um 100 gullsmišir frį żmsum löndum tóku žįtt ķ keppninni sem haldin er ķ St. Pétursborg žar sem Peter Carl Fabergé (1846-1920) starfaši fram aš Rśssnesku byltingunni 1917. Veršlaunagripirnir eru til sżnis ķ versluninni “Aurum“ viš Laugaveg. Til hamingju Gušbjörg meš žennan stórkostlega įrangur!

 


Silfurboršbśnašur eins og ašrir vandašir og veršmętir munir žarf góša umhiršu. 1-2svar į įri žarf aš pśssa hann og gott er aš geyma silfur žar sem lķtiš loftar um žaš. Viš uppžvottinn skal nota upphitaš kalt vatn žvķ hitaveituvatn oxar silfur. Rétt umhirša tryggir aš nęsta kynslóš getur tekiš viš boršsilfrinu óašfinnanlegu og svo koll af kolli.

 


Ķslenskur silfurboršbśnašur vakti mikla athygli nżveriš į sżningu ķ Danmörku.
Fagurkerar į Noršurlöndum og ķ Austurlöndum nęr eiga brįtt kost į žvķ aš snęša meš žessum fögru munum. Ķ byrjun er žaš Reykjavķkurmunstriš (hannaš um 1936) og Smįramunstriš (hannaš 1960) sem verša seld erlendis. Žessi munstur įsamt 5 öšrum ķslenskum munstrum hafa veriš eftirsótt hérlendis og einnig mešal Vestur-Ķslendinga fram aš žessu. Ekki hefur veriš brugšiš śtaf upphaflegu handsmķšinni en žaš įsamt sķgildri meistarahönnum hefur nś gert žessa listmuni aš śtflutningsvöru.

 


Demantar į tennur
Foršum skreyttu menn tennur sķnar meš žvķ aš grópa ķ žęr gimsteina. Ķ dag er hęgt aš setja tannskraut, śr 22-24 karata gulli meš eša įn demanta, į tennur įn žess aš valda skaša. Tannskraut er fįanlegt hjį żmsum gullsmišum og tannlęknum en ašeins tannlęknar sjį um aš festa žaš į tennur.

 


Enn eimir eftir af gullęšinu ķ Bandarķkjunum. Žar eru starfrękt samtök gullgrafara (Gold Prospectors Association of America). Stöku sinnum finna menn gull einsog hjónin Jan og Jess Harkness. Žau voru viš gullleit nįlęgt Stanton ķ Arisona. Žegar mįlmleitartęki žeirra gaf frį sér hįtt hljóš héldu žau aš žau hefšu fundiš skeifu. Annaš kom į daginn žvķ žarna var um eins kķlóa gullmola aš ręša. Sögur af slķkum fundum halda įhugasömum gullleitarmönnum viš efniš. Į Ķslandi hefur Orkustofnun kannaš hvort hér į landi finnist gull ķ samvinnu viš fyrirtękiš Mįlmķs hf. Bķša margir spenntir eftir nišurstöšu. 

 


Žegar flett er bókinni Gullsmišatal (śtg. FĶG 1991) er stašnęmst viš mynd af svipmiklu andliti. Ķ fyrstu viršist sem tķminn hafi rist andlit mannsins. "Hannes Gušmundsson (1841-1871) var mikill dugnašarmašur viš bśskap svo um var talaš. Śr mįlmi og tré smķšaši hann nytjahluti, sparaši aldrei efniš og var samt ódżrari en ašrir. Hann var vinnuvķkingur, til dęmis smķšaši hann 6-10 nżsilfurbśna tóbaksbauka į viku og 2-3 vandašar svipur į dag. Hannes lagši mikiš upp śr žvķ aš ungt fólk yrši sér śti um góša menntun".