11.11.11

11.11.11 kom nýjasta YRSAn. Stálúr, Miyota 82S0 sjálfvinda.

-o-

Nú í haust höfum við unnið að smíði víkinga sem Ernst Backman skóp fyrir Sögusafnið sem hann rekur í Perlunni í Öskjuhlíð. Hannes Hübner lærlingurinn okkar fékk að spreyta sig á þessu verkefni enda sjálfur víkingur úr Gautalandi.

-o-

Fyrir nokkru útbjuggum við í Ernu barmmerki með mynd af frelsishetju frænda vorra Færeyinga, Nólseyjar Páli. Í sumar var starfsmaður okkar staddur í Færeyjum og heimsótti Nólseyju og tók þar mynd af þessu minnismerki um kappann.

 

-o-

 

Dóra Guðbjört Jónsdóttir gullsmiður var svo vinsamleg að koma með þessa hnappa til að sýna okkur, starfsfólki Ernu. Þá smíðaði Guðlaugur A. Magnússon (1902-1952) stonandi Ernu hf.

 

Þessar silfurskálar voru smíðaðar í sumar fyrir listakonuna Kolbrúnu Hjörleifsdóttur úr Mýrdal. 

 

Fjörusteinninn 2011 umhverfisviðurkenning Faxaflóahafna var afhentur nú fyrir skemmstu. Það var fyrst árið 2007 sem Vignir Albertsson kom að máli við okkur og fékk okkur til að setja saman grip úr fjörusteini og silfri.

 

 

 

 

 

Úr gömlu vélsmiðjunni á Þingeyri.

 

Lykill að velgengni.

  Viðskiptavinur okkar sem starfar sem smiður í Noregi sagði okkur hér í Ernu frá því að iðnaðarmenn frá Íslandi væru fljótari að skilja vinnuteikningar og í að átta sig á verkefnum en aðrir. Hvernig stendur á því. Gæti það verið tungumálið? Við höfum í kynslóðir talað mál sem breyst hefur mun hægar en önnur mál og er því okkur gegnsætt. Við skiljum heiti hluta með öðrum hætti, sjáum þá auðveldlega fyrir okkur og eigum auðvelt með að raða upp í huganum  staf, bita, stoð og sperru.

 

 

Grettisbeltið er merkasti og sögufrægasti gripurinn í íþróttasögu Íslands. Í Ernu hf höfum við verið þess heiðurs aðnjótandi undanfarin ár að bæta nýjum skildi ár hvert á þennan fagra grip. Pétur Eyþórsson glímukappi úr KR er handhafi Grettisbeltisins og ber titilinn glímukóngur Íslands, að okkur telst í 6. sinn. Grettisbeltið var smíðað af Erlendi gullsmið Magnússyni en fyrst var keppt um það 1906. Glímudrottning Íslands er Marín Laufey Davíðsdóttir og hampar hún Freyjumeninu sem smíðað var hér í Ernu hf árið 2000 úr silfri, gulli og perlum.

 

 

Hér má sjá nýjasta YRSU úrið. Skemmtileg sjálfvinda fyrir karlmenn á fínu verði.

 

Dóra Guðbjört Jónsdóttir gullsmiður var, 1. janúar 2011, sæmd riddarakrossi fyrir framlag til þjóðlegrar gull- og silfursmíði. http://www.mbl.is/frettir/forsida/2011/01/01/tolf_saemd_falkaordu/  Hér má sjá skemmtileg viðtal við hana http://www.youtube.com/watch?v=iXeZPyHg1ak  Dóra hefur safnað miklum fróðleik um gull-og silfursmíði og unnið fyrir Félag íslenskra gullsmiða í áratugi ómetanlegt starf , var m.a. fyrst kvenna formaður félagsins. Starfsfólk Ernu óskar henni til hamingju og þakkar gott samstarf og vináttu.

 

Þessi Renaissance hnífspaði og tertuhnífur voru smíðaðir 1952 árið sem Guðlaugur A. Magnússon stofnandi Ernu lést og sonur hans Reynir tók við sem meistari smiðjunnar. Eins og spaðann, hér að neðan, fengum við þessa gripi til að lagfæra. 

Undanfarin ár hefur gull og silfur hækkað mikið og síðustu vikurnar hefur silfur tekið mikinn kipp. Grafið að ofan sýnir hækkun úr $18 í ágúst uppí tæpa 28 dollara nú í byrjun nóvember 2010. Gull og silfurverð er skráð í dollurum á Troy únsu sem er 31.1034768 gr. Troy únsa er kennd við Troyes í Frakklandi, ekki hina fornu borg Tróju eins og margir halda, þar sem frægur markaður var haldinn allt frá 5. öld. Á dögum Karlamagnúsar varð þessi markaður þekktur utan héraðsins (Champagne) og menn komu víða að. Þannig breiddist út þessi mælieining. Á grafinu að neðan sést hækkun síðustu 5 ára, þar sést að silfur hefur nær fjórfaldast í verði.

 

 

Margt skemmtilegt rekur á fjörur okkar hér í Ernu. Þennan spaða gerðum við við, hann er eftir Björn Halldórsson leturgrafara. Í fróðleiksmolum Ernu sem birtust í Sjónvarpshandbókinni á árunum  1997- 2000 má finna þessa klausu um Björn: "Björn leturgrafari
var einn þeirra manna er settu svip á bæinn um miðja þessa öld. 1936 fékk hann leyfi Páfagarðs til að teikna innsigli Meulenbergs biskups kaþólskra hér á landi. Eftir að hafa smíðað innsiglið fór hann á fund Páfa sem blessaði það og bauð Birni vinnu sem leturgrafari Páfagarðs. En í bænum við sundin beið íslensk stúlka, því voru það Íslendingar sem nutu starfa Björns. Björn lést árið 1971. Sonur hans Ívar hefur á lofti merki hans sem meistarasmiður og leturgrafari til dagsins í dag."

 

Í samvinnu við Atson leðuriðju bjóðum við nú armbandsúrin okkar YRSU með mjög vönduðum íslenskum ólum úr roði og í ýmsum litum. Þannig útbúin kosta úrin 37.500,- og hæfa bæði dömum og herrum.

 

2009 eru 85 ár frá því Guðlaugur A. Magnússon, stofnandi Ernu ehf, hóf starfsemi sína á Ísafirði. Það er því við hæfi að nú á aðventunni verða 2 sýningar honum til heiðurs. Á Ísafirði hefur verið sett upp sýning á jólaskeiðum en Guðlaugur hóf smíði þeirra árið 1946. Í Árbæjarsafni er sýning á 2 borðbúnaðarmynstrum Guðlaugs, Kaktus og Reykjavík.

 

Fegurðarsamkeppni

er þetta ekki heldur útskrift gullsmíðasveina í vorblíðunni 2009. Á myndinni frá vinstri: Hilmar Einarsson formaður prófnefndar, Arna Arnardóttir, Helena Rós Róbertsdóttir, Júlía Þrastardóttir, Laila Björk Sveinsdóttir, Sigrún Sigurjónsdóttir og Stefanía Jónsdóttir ásamt Reyni Má Ásgeirssyni formanni FÍG.

 


,,Blessa þú Guð hverja hagleikans hönd".

Nú í apríl (2009) fóru nokkrir áhugamenn um myndskurð, sem höfðu verið á námskeiðum í vetur hjá Erni Sigurðssyni myndskurðarmeistara, í vettvangsferð og skoðuðu myndskurð í Alþingishúsinu, Baðstofu Iðnaðarmanna og í Kristskirkju. Á myndinni að ofan segir Ásgrímur Jónasson formaður Iðnaðarmannafélagsins frá sögu þess og endurreisn baðstofunnar sem var innréttuð í gamla iðnskólanum árið 1926. Henni er lýst þannig í tímariti iðnaðarmanna: Skarsúð er á sperrum en reisusúð á stöfnum og setbekkir í hverju stafgólfi. 
mari er undir hverri sperru og í hvern þeirra er gerð hönd sem heldur á kyndli. Hún er skorin úr íslensku birki. Fornar ljósakrónur eru í skammbitum og við innganginn í baðstofuna er kolur.

 Þeir Hannes Ólafsson og Örn Sigurðsson skoða hér biskupsstólinn í Kristskirkju sem Ríkarður Jónsson skar út. Gaman er að geta þess að Örn Sigurðsson nam hjá Sveini Ólafssyni er nam hjá Karli Guðmundssyni sem nam hjá Ríkarði Jónssyni. Þrír síðastnefndu hafa hannað muni fyrir Ernu ehf. Laugardaginn 16. maí (2009) verður nemendasýning á verkstæði Arnar í Hamraborg 1 , Kópavogi.

 

 

 

Á aðalfundi Félags íslenskra gullsmiða 7. mars s.l. var kjörinn nýr formaður, Reynir Már Ásgeirsson. Á myndinni tekur hann við fundahamri félagsins úr höndum fráfarandi formanns Hauks Valdimarssonar. Með þeim á myndinni er fundarstjórinn Sigurður G. Steinþórsson. Fleiri myndir á ,"fésbók".

 

 

17. febrúar s.l. átti stóra pressan okkar 60 ára afmæli. Hún var smíðuð í Charleroi, Belgíu árið 1949. Hámarksslag er 160 tonn á fersentimeter sem hentar vel í borðbúnaðarframleiðslu.

 

Þorrablót Ernu var haldið í febrúar 2009 á 85 ára afmæli verkstæðisins.

 

Yrsa hélt sína árlegu jólatónleika í smiðjunni okkar nú á aðventunni. Hún lék Heims um ból og nokkur íslensk lög m.a. eftir Ingibjörgu Þorbergs frænku sína sem gaf henni hvítu húfuna sem hún heldur mikið uppá.

Hurðaskellir Ívars Orra

Jólaskeiðin verður næsta sýning Hönnunarsafns Íslands í sýningarsalnum á Garðatorgi í Garðabæ.  Þar verða sýndar silfurskeiðar tegndar jólahaldi og jólasveinum sem framleiddar hafa verið á Íslandi allt frá árinu 1946.

Sýningin verður opin fimmtudaga, föstudaga, laugardaga og sunnudaga frá kl. 14:00 til kl. 18:00 frá 15. nóvember 2008 til 1. febrúar 2009. Hægt er að fá leiðsögn um sýninguna og tekið er á móti hópum utan opnnunartíma eftir samkomulagi.

Fyrsta sunnudag í aðventu kl. 13:30 flytur Harpa Þórsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafnsins, erindið Íslenska jólaskeiðin, saga, stíll og hefðir, í Garðabergi við hliðina á sýningarsal Hönnunarsafnsins.

 

Grein um Njáluarmbandið í fréttablaðinu

 

Heimasíða Sóleyjar Þórisdóttur

 

Úr sumarferð starfsmanna Ernu fyrir 60 árum:

Nú í sumar (2008) var starfsmaður Ernu á ferð frá Akureyri til Húsavíkur og kom við á Samgönguminjasafninu á Ystafelli og sá þar mótorinn úr fremri bílnum sem er Lincoln Zephyr 1937, 12 strokka. Sá aftari er Buick 1948.

 

 

Fjörusteinninn 2008, umhverfisverðlaun Faxaflóahafna. Gullsmiðir Ernu ehf fengu það verkefni að útbúa þennan grip sem er úr silfri og fjörugrjóti. 

"Það var Vilhjálmur Fenger, forstjóri Nathan og Olsen, sem tók við Fjörusteininum úr hendi Júlíusar Vífils Ingvarssonar, formanns stjórnar Faxaflóahafna sf."  meira

 

  

   "Gulleggið 2008" verðlaun frumkvöðlakeppni "innovit" í höndum höfundar og smiðsins Reynis Más sem er 4. ættliður gullsmiða í fjölskyldufyrirtækinu.

  

Sóley Þórisdóttir með útskriftarverkefni sitt í vöruhönnum við MHÍ sem hún vann í samvinnu við Ernu ehf og Álverið ehf. Ef smellt er á myndina kemur upp frétt úr Fréttablaðinu.

Munirnir eru fáanlegir í vefversluninni Birkiland:

Ahold_1800_1500_medium

   http://www.birkiland.is/categories/accessories/kitchen-and-tabletop/h-ld-utensils#