|
|

0.52 ct. demantur.
Þessi hringur (14k/585, WSi, 0.52 ct) kostar 385.000,/- (eigum
einnig 14k hvítagullshring með 1.05ct IP1 sem kostar 975.000,-). Leitið tilboða og fáið besta
hugsanlega verð þar sem stærð, litur, lögun og hreinleiki koma fram. |
|
|
|
0.50ct. Princess-cut
demantur í titanium hring.
Öllum demöntum okkar fylgir skírteini þar sem
stærð, litur, gæði og lögun koma fram. Við viljum benda á vegna
umræðu um "blóðdemanta" að við höfum skjalfesta
yfirlýsingu frá belgíska fyrirtækinu, sem nefnt er að ofan, um að
þeir versli ekki með slíka steina. Verkstæði okkar hefur starfað
frá 1924 og við erum félagar í IGS, International Gem Society. Okkar saga líkt og saga demantafyrirtækisins tryggir
ábyggileika demantaskírteinisins. Skírteini frá traustu fyrirtæki er
einnig góð trygging, glatist gripur, þegar kemur að tryggingafélögum.
Ef þú kemur í smiðjuna
okkar í Skipholti verslar þú beint við smiðina og getur ákveðið
útlit skartgripsins í samráði við þá og sparað að auki stórfé.
Frægust
demantar sögunnar eru Koh-I-Noor
sem er varðveittur í Tower of London og er hluti af krúnudjásnum Elísabetar
Englandsdrottningar. Hope
demanturinn er talinn hafa á sér bölvun, var m.a. í eigu Marie
Antoinette. Sagt er að hún hafi borið hann þegar hún var hálshoggin
í frönsku byltingunni. Cullinan
steinninn var upphaflega 3.106 karöt og sá stærsti sem fundist hefur en
honum var skipt í 9 stóra steina og marga smærri. Cullinan er kenndur
við frægustu demantanámuna en þar fannst 2009 stór steinn 507 karöt
og rataði í heimspressuna. Helstu “framleiðendur” demanta eru löndin
Botswana og Namibía, fyrirtækin De Beers, með 40% heimsmarkaðsins (eigendur
þess eru Anglo American 45%, Oppenheimer fjölskyldan í Suður- Afríku
40% og Botswana 15%), Rio
Tinto, BHP Billiton, Lev Leviev, Harry Winston og Alrosa. Auk Suður Afríku
eru Rússland, Kanada og Ástralía stórir framleiðendur.
Að neðan má sjá tvö algeng flokkunarkerfi lita og
einfalda flokkun hreinleika.
|
|